Ranglæti og mannfyrirlitning í starfsemi Dróma
Stjórnendur Dróma eru lögmenn og starfsemin fellur undir lög og reglur um fjármálastarfsemi. Því má gera meiri kröfu til þeirra um vandaða, siðlega og löglega starfshætti en gengur og gerist í rekstri fyrirtækja. Þeir geta ekki borið fyrir sig þekkingarleysi á fyrirætlunum eða tilmælum yfirvalda. Þeir geta ekki leyft sér að misnota styrkleika sinn gagnvart þeim einstaklingum og fjölskyldum sem voru lántakendur hjá Spron eða Frjálsa fremur en öðrum lánastofnunum. Þeir geta ekki leyft sér að stunda fólskulega viðskiptahætti. Engu að síður gera þeir það.
- Drómi hefur EKKI verið með leyfi til að innheimta lán SPRON og Frjálsa síðustu 4,5 árin. Drómi hefur engu að síður gengið fram af fádæma hörku við það að hirða eignir af viðskiptavinum sínum og kemur fram í fyrirspurn á spyr.is 20. mars árið 2013 að Drómi hafi leyst til sín 276 íbúðir.
- Á meðan stóru viðskiptabankarnir hafa endurreiknað öll gengistryggð lán skv. Árna Páls lögum, óháð því hvort einhverjir samningar voru hugsanlega löglegir, heldur Drómi áfram að pönkast í um 150 viðskiptavinum sínum og krefja þá um endurgreiðslu á fyrri endurreikningum, þar sem lánin reyndust vera lögleg. Ástæðan fyrir því að Árna Páls lögin voru sett á sínum tíma var til þess að koma í veg fyrir svona mismunun en Drómi ákveður sem sagt að hunsa Árna Páls lögin þó svo að þau séu enn í fullu gildi og að viðsiptavinirnir eigi því með réttu að fá endurreikning lána sinna. Drómi ætti að krefja ríkið um skaðabætur vegna þessa, en þar sem það er auðveldara að ráðast á minnimáttar, einstaklinga og fjölskyldur sem hafa oft á tíðum ekki bolmagn til að verjast fyrir dómstólum, velur Drómi að sjálfsögðu þá leið.
- Drómi neitar að borga til úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki, sem þýðir að úrskurðarnefndin getur ekki tekið fyrir mál viðskiptavina Dróma. Með því móti rænir Drómi einstaklinga þeim möguleika að skjóta ágreiningsefnum fyrir nefndina og neyðir þá þess í stað til að leggja í kostnaðarsöm málaferli. Með þessu háttalagi hefur Drómi betri rétt af einstaklingum í því skyni að hafa af þeim fjármuni.
- Drómi heldur fólki í viðskiptafjötrum með því að setja fyrirvara við alla endurreikninga sína, þannig að fólki er nær ómögulegt að greiða upp lán sín án þess að geta alltaf átt von á rukkun frá Dróma síðar meir.
- Dæmi eru til um að Drómi hafi tekið eignir af fólki á fölsku lágu matsverði og selt á mun hærra verði í eigin hagnaðarskyni.
- Drómi svarar fyrirspurnum seint og illa og er altalað meðal lögfræðinga, að það að senda póst á Dróma sé eins og að henda gögnum inn í svarthol.
- Þeir viðskiptavinir Dróma sem hafa reynt að fara í gegnum 110% leiðina hafa nær undantekningalaust lent í því að Drómi metur fasteign þeirra hærra heldur en aðrir viðskiptabankar, sem leiðir til þess að fólki er hafnað um 110% leiðina.
- Fólk sem er alls ekki í viðskiptum við Dróma, en er svo óheppið að kaupa sér íbúð með áhvílandi Drómaláni lendir iðullega í seinagangi Dróma við að aflétta veðum og fá síðustu greiðslur greiddar.
- Greiðsluseðlar berast viðskiptavinum seint og illa og í sumum tilfellum bara alls ekki.