Samið um að Arion banki taki við umsýslu lána einstaklinga sem hafa verið hjá Dróma
Frétt RÚV 30. des. 2013:
"Drómi hættir umsýslu með öll lán samkvæmt samningum milli Dróma, Arionbanka og Eignasafns Seðlabankans sem gerðir voru í dag. Lán almennings flytjast til Arionbanka. Lengi hefur staðið til að lán sem Drómi hefur sýslað með síðan Spron og dótturfélag þess Frjálsi fjárfestingarbankinn féllu yrðu flutt annað. Innlánsskuldbindingar Spron voru fluttar til Arionbanka í mars 2009 og félagið Drómi stofnað um eignir Spron. Og skuldaði Drómi þá Arion banka 100 milljarða vegna innlánanna. Samkvæmt samningunum í dag greiðist skuldin upp að fullu með því að lán einstaklinga hjá Dróma verða flutt til Arionbanka. Dótturfélag Eignasafns Seðlabanka Íslands, Hilda, mun hins vegar taka við öllum fyrirtækjalánum Dróma og svokölluðum fullnustueignum, meðal annars fasteignum. Samningarnir fela í sér að ekki reynir á ábyrgð ríkissjóðs, segir í tilkynningu Seðlabankans, og þeir flýta jafnframt fyrir slitameðferð Spron. Lánin eða afhending eignanna fer fram á næstu vikum." |
Fréttir og fréttatilkynningar
http://www.visir.is/skuldarar-heimtir-ur-helju/article/2013131239879
http://www.ruv.is/frett/lan-almennings-hja-droma-til-arionbanka http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2013/12/30/samningar_nadust_um_droma/ http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/12/31/dromi_hefur_lokid_sinu_hlutverki/ http://sedlabanki.is/utgefid-efni/frettir-og-tilkynningar/frettasafn/frett/2013/12/30/Samningar-um-uppgjor-a-milli-Droma-Eignasafns-Sedlabanka-Islands-og-Arion-banka/ |