Fjármálaeftirlitið stendur með Dróma gegn almenningi í landinu
Svo undarlegt sem það kann að virðast, þá hefur Drómi fyrst og fremst komist upp með svívirðilega framkomu gegn einstaklingum og fjölskyldum með stuðningi Fjármálaeftirlitsins. Linkind FME gagnvart Dróma er í hróplegu ósamræmi við þær yfirlýsingar á heimasíðu stofnunarinnar að eitt af verkefnum hennar sé eftirlitsskylda í þágu neytenda fjármálaþjónustu.
Rétt er að rifja upp að FME stofnaði Dróma árið 2009. FME gerði fyrrum sviðsstjóra verðbréfasviðs FME og starfsmann til margra ára að hæstráðanda Dróma og formanni beggja slitastjórnanna sem þar starfa. Drómi starfar því á ábyrgð og með velvild FME.
Vegna mikilla kvartana undan Dróma hefur FME gefið út svokallaðar gagnsæistilkynningar um fyrirtækið. Þessar skýrslur einkennast af linkind gagnvart lögbrotum Dróma og áhugaleysi á að taka á brotum fyrirtækisins þrátt fyrir að FME hafi fjölmargar heimildir til þess. Steininn tók úr þegar FME birti nýlega enn eina gagnsæistilkynninguna, sáttagerð vegna ólöglegra innheimtuaðgerða Dróma. FME tilkynnti að það hefði sektað Dróma um 2,8 milljónir króna. Í raun er ekki um sekt að ræða, því að upphæðin er sú sama og Drómi hefði þurft að greiða fyrir innheimtuleyfi þann tíma sem hin ólögmæta innheimta fór fram, eða 700 þús. kr. á ári. Því var ekki um sekt að ræða, heldur greiðslu vegna innheimtuleyfis.
Þegar Drómi tilkynnti Fjármálaeftirlitinu að fyrirtækið ætlaði ekki að taka þátt í kostnaði við úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki, þá lét FME það gott heita og tilkynnti kærendum að ekki væri hægt að taka fyrir kærur á hendur Dróma hjá úrskurðarnefndinni. Með því móti vanrækir FME eftirlitsskyldu sína í þágu neytenda fjármálaþjónustu, þrátt fyrir að það sé ein af frumskyldum stofnunarinnar. Vart veldur fjárskortur þessari afstöðu FME, enda hyggst stofnunin ekki nýta sér 400 milljónir króna af fjárveitingu þessa árs og skilaði einnig ríflegum afangi í fyrra.

FME lítur framhjá lögbrotum Dróma
FME hefur verkfærin og lögin sín megin til að stoppa Dróma. Stofnunin kýs hins vegar að líta framhjá lögbrotum Dróma. Drómi hefur frá stofnun stundað harkalegri innheimtu en áður hefur þekkst. Grófasta dæmið er fjögurra og hálfs árs ólögmæt innheimta Dróma í þágu þriðja aðila. Tveimur árum eftir að FME var bent á þessi vinnubrögð Dróma ákvað eftirlitið að kippa málinu í lag með því að leyfa Dróma að borga leyfisgjald fyrir þau fjögur og hálft ár sem fyrirtækið starfaði með ólögmætum hætti.
Á heimasíðu FME stendur eftirfarandi:
"Neytendavernd
Eftirlit Fjármálaeftirlitsins miðar að því að viðhalda styrk og öryggi einstakra eftirlitsskyldra aðila og varðveita fjármálastöðugleika og trúverðugleika fjármálamarkaðarins. Samhliða og nátengt hlutverk Fjármálaeftirlitsins er að hafa eftirlit með viðskiptaháttum gagnvart neytendum fjármálaþjónustu.
Fjármálaeftirlitið fylgist með því að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur eða samþykktir sem um starfsemina gilda og að starfsemin sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti. Þannig stuðlar Fjármálaeftirlitið að því að hagsmunir viðskiptavina eftirlitsskyldra aðila séu tryggðir."

Yfirþyrmandi meðvitundarleysi FME
"Gott" dæmi um yfirþyrmandi meðvitundarleysi Fjármálaeftirlitsins gagnvart Dróma kom fram á Alþingi í svari við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um starfsemi slitastjórna SPRON og Frjálsa (Dróma). Í svari ráðherrans sagði meðal annars:
- "Í svari Fjármálaeftirlitsins kom fram að það heldur hvorki utan um kröfulýsingar né skrá yfir starfsmenn slitastjórnar SPRON og fyrri störf þeirra eða skrá yfir það hversu margir hafi ekki fengið endurútreikning og leiðréttingu á ólöglegum gjaldeyrislánum hjá SPRON."