Þau stjórna atlögum Dróma
Slitastjórn Dróma hefur nú verið að störfum í fjögur og hálft ár og lítið útlit fyrir að hún fari að ljúka störfum. Þess má geta að reiknað er með að það taki átta ár að klára að ganga frá þrotabúi Lehman Brothers, sem er stærsta gjaldþrot sögunnar. Með mjög grófri nálgun má áætla að kröfur í þrotabú Dróma séu um 0,1% af kröfum í bú Lehman Brothers eða sem samsvarar lítilli skúffu á skrifstofum bandaríska fyrirtækisins. Það virkar því mjög furðulega á almenna leikmenn að það taki þetta mörg ár að ganga frá málum Dróma.
Slitastjórn Dróma segir sitt eina hlutverk vera að hámarka eignir þrotabúsins. Því hámarki virðist svo sannarlega ekki eiga að ná með því að halda kostnaði niðri,
Samkvæmt upplýsingum frá Skattinum þurfa sérfræðingar sem sitja í eða vinna í þágu slitastjórna fjármálafyritækja að greiða sér laun upp á 1,65 milljónir króna á mánuði eða ca 2,1 milljón með launatengdum gjöldum. Heyrst hefur þó að sérfræðingar slitastjórna og lögfræðingar borgi sér allt upp í 35 þús króna á hverja klst, ef það reynist rétt er kostnaður á mánuði fyrir aðilana fimm hér fyrir neðan tæpar 30 milljónir á mánuði. Það gera 360 milljónir á ári og þá eru ekki meðtaldir almennir starfsmenn Dróma. Erfitt er að áætla fjölda almennra starfsmanna þar sem engar upplýsingar eru veittar um þá á heimasíðu Dróma. Ef við giskum á 10 starfsmenn með 600 þús króna meðallaun bætast við 72 milljónir á ári. Þá erum við komin upp í launakostnað upp á 430 milljónir á ári. Þá er enn ótalið allt er viðkemur rekstri á húsnæði, tölvubúnaði og annað slíkt. Ef við bara lítum framhjá því er rekstrarkostnaður Dróma á síðustu fjórum og hálfa ári samt kominn í tæpa 2 milljarða!
Til samanburðar má benda á að SPRON lánin sem Drómi lítur nú á sem lögleg lán og er að senda endurkröfur á um 150 viðskiptavini fyrir, eru upp á ca. 1,5 milljarð króna. Getur verið að það séu feitir launatékkar slitastjórnarmanna sem valda því að gengið er svo hart fram við fjölskyldurnar sem eru svo ólánsamar að vera "viðskiptavinir" þeirra?
Athygli vekur að slitastjórnarmenn og starfsmenn hennar tengjast í einni og sömu lögmannsstofunni, Kvasir lögmenn á Laugavegi 182. Með hliðsjón af atferli þessa fólks síðustu árin sætir furðu að þau skuli ekki vera búin að breyta nafni stofunnar í Kvalir lögmenn.

Hlynur Jónsson hrl.
Formaður slitastjórnar og sá sem einna helst kemur fram í fjölmiðlum fyrir Dróma. Hefur verið ásakaður um að sitja beggja vegna borðsins í vinnu sinni fyrir Dróma, sjá umföllun hér.
Starfaði hjá Fjármálaeftirlitinu áður en Fjármálaeftirlitið gerði hann að formanni slitastjórnarinnar. Það skýrir sjálfsagt betur en annað hvers vegna FME sýnir Dróma svo mikla linkind.
Er einn af eigendum "Kvasir lögmenn" en frá þeirri lögmannsstofu koma flestir stjórnendur Dróma.

Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl.
Situr í slitastjórn. Heldur sig frá sviðsljósinu og lætur Hlyn sjá um að koma fram í fjölmiðlum.
Er einn af eigendum "Kvasir lögmenn" en frá þeirri lögmannsstofu koma flestir stjórnendur Dróma.
Situr í slitastjórn. Heldur sig frá sviðsljósinu og lætur Hlyn sjá um að koma fram í fjölmiðlum.
Er einn af eigendum "Kvasir lögmenn" en frá þeirri lögmannsstofu koma flestir stjórnendur Dróma.
Jóhann Pétursson hrl.
Situr í slitastjórn.
Rekur Lögmannsstofu Vestmannaeyja, sem svo vill til að er með "útibú" á Laugavegi 182, annarri hæð, á sama stað og "Kvasir lögmenn."

Bjarki Már Baxter
Einn af ötulustu innheimtulögmönnum Dróma. Var staðinn að lygum á fundi með Efnahags og- viðskiptanefnd í febrúar 2013.
Starfsmaður hjá "Kvasir lögmenn" en frá þeirri lögmannsstofu koma flestir helstu stjórnendur og starfsmenn Dróma.

Páll Árnason
Var útibústjóri SPRON og stjórnarmaður í stjórn SPRON lóðbeint fram að hruni. Sjá hér
Gagnrýnt hefur verið að hann skuli hafa eitthvað með umsýslu SPRON lánana að gera.