Samstaða gegn Dróma
Þessi síða heldur utan um upplýsingar og staðreyndir um starfsemi Dróma og Frjálsa fjárfestingabankans. Fyrir hrunið átti SPRON Frjálsa fjárfestingabankann. SPRON hrundi 21. mars 2009 og Frjálsi í kjölfarið 23. júní 2009 og yfir þessa tvær fjármálastofnanir var sett slitastjórn. Við hrun Spron var tekin sú afdrífaríka ákvörðun að eignir einstaklinga skyldu fluttar yfir til Arion banka á meðan skuldirnar sátu eftir hjá slitastjórnini. Hjá Frjálsa voru engin innlán einstaklinga (eignir) heldur eingöngu skuldir og sátu þær líka eftir hjá slitastjórninni. Þarna myndaðist því í einu vetfangi hópur fólks sem var skilið eftir í "viðskiptum" við þrotabú. Það er ólíkt því þegar stóru viðskiptabankarnir þrír féllu og séð var til þess að skuldir og eignir einstaklinga voru fluttar yfir í nýju bankanna en ekki skilið eftir í þrotabúum föllnu bankanna.
Orðið viðskiptavinur er hér haft i gæsalöppum til að leggja áherslu á það að hér er ekki um neitt viðskiptasamband að ræða, því "viðskiptavinirnir" sitja bara fastir í þrotabúinu og hafa sumir hverjir þurft að sæta óréttmætum árásum af hendi slitasjórnar Dróma. Réttara er að tala um að fólk sé í fjötrum Dróma, enda snúast "viðskiptin" eingöngu um það hjá Dróma að ná fjármunum og eignum af fólki.
Þessi vefsíða er sett saman af aðilum úr hópnum "Samstaða gegn Dróma" og er tilgangurinn með henni að sýna hvernig Drómi pönkast á "viðskiptavinum" sínum. Stjórnvöld og eftirlitsstofnanir hafa nú í nærri fimm ár setið hjá aðgerðarlaus vegna starfshátta Dróma. Kominn er tími til að þessir útverðir réttarríkisins sinni lögbundnum skyldum sínum, verndi einstaklinga og fjölskyldur fyrir glæpsamlegum vinnubrögðum og sjái til þess að ófögnuðinum Dróma verði lokað og "viðskiptavinir" færðir yfir í viðskiptabanka þar sem þeir geta fengið eðlilega réttláta meðferð sinna mála.
Ef fólk vill koma á framfæri upplýsingum og fleiri reynslusögum, er hægt að senda þær á netfangið [email protected].